Sko mig, næ að henda inn maí bloggi

Allt hið fínasta að frétta hérna. Sólin skín, fuglarnir syngja, blómin springa út, eplin byrjuð að myndast o.s.frv.

Farið að styttast í sumarfrí hjá börnunum og mikil tilhlökkun, en þó mesta tilhlökkunin eftir að fá Sigrúnu og Aþenu í heimsókn, og þær koma núna á mánudaginn, fer á morgun að leigja bílstól fyrir Aþenu svo hún sé lögleg í bílnum
Við, eða þá aðallega Bjarni, er búinn að vera að dunda sér í þvottahússtandssetningu

þetta hefst allt smátt og smátt og hægt og rólega og ég er náttúrulega einstaklega þólinmóð og legg enga pressu á hann

Flísarnar eru nánast komnar á allt gólfið en stefnan er að klára restina og fúga um helgina. Verð að segja að þetta lítur helvíti vel út hjá Bjarna mínum, en þetta er í fyrsta skipti sem han leggur flísar, og gólfið hjá okkur í þvílíkum hólum og hæðum þannig að þetta er búið að vera púsl að fá gólfið nokkuð beint. Svo getum við farið að henda innréttingunni inn þegar gólfið er klárt, en hún er búin að standa á stofugólfinu hjá okkur sem punt í ca. mánuð

Mikið hlakka ég til að fá þvottahúsið mitt í stand.
Ég er búin að vera að dunda mér við að mála gluggana að utan, þá sem snúa út á pall. Verð nú að viðurkenna að það er ekki beint mitt uppáhalds málingajobb, tók mig meira en klst. að mála stóru rennihurðina og gluggann í stofunni, eina umferð

en nú á ég bara eftir að mála aðra umferð þar og allt annað er búið, þannig að þetta kemur í sama hægagangi og þvottahúsið

Ég held að við séum komin með hálfgert gæludýr, síðastliðin kvöld um 8 leytið höfum við verið með héra"stubb" í garðinum, sem trítlar um og borðar fíflana okkar, okkur til mikillar ánægju. Á meðan liggjum við í glugganum hans Gabríels og fylgjumst með ferðum hans og reynum að ná góðum myndum, hann er bara því miður frekar fælinn enda
vilt dýr, en ef hann ætlar að vera gestagæludýrið okkar er eins gott að
hann fari að kynnast okkur

Hmmm, og hvað svo meir...
Jú ég er orðin vejleder, eða leiðbeinandi ef ég man rétt íslenskuna

Við vorum að fá SSA nema á deildina okkar og ég var beðin um að vera vejleder fyrir hana, og ég tek náttúrulega ósmeik á móti öllum áskorunum

enda komin með tæplega 2 mánaða starfsreynslu

Vona að ég geti leiðbeint henni nógu vel, sem betur fer virðist þetta skynsemis kona og líka búin að taka SSH áður eins og ég, þannig að það ætti ekki að vera nein vandræði með hana. Veit ekki hvort ég mundi meika að fara að fella einhvern í praktíkinni

Annars er ég mjög ánægð í vinnunni, er þvílíkt að fýla þegar hjælperner eru að koma og spurja mig ráða varðandi eitt og annað og núna meðan hjúkkurnar eru enn í verkfalli er maður mikið í læknasambandi varðandi lyf og sjúkdóma hjá gamlingjunum þannig að það er nóg að gera og er ég eiginlega frekar hissa á hvað mér líkar vel, því ég nennti engan vegin að fara að vinna á elliheimili þegar ég fór í námið, fannst það alls ekki nógu spennandi

En þar að auki er gott félagslíf hjá starfsfólkinu, alltaf fyrsta föstudag í hverjum mánuði er haldið fyraftensmøde, þ.e. að eftir vinnu er farið á knæpu og fengið sér öllara eða annað og setið og spjallað og haft það huggulegt. Í síðustu viku tóku 4 sig saman og héldu afmælisveislu fyrir staffið, matur, vín og huggulegheit. þannig að ég er eiginlega bara nokkuð ánægð í vinnunni.
Það er farið að styttast í próf hjá Bjarna, krossum fingur og vonum að það gangi vel hjá honum

Hann er nú ekki alveg beint að brillera í dönskunni en treystir á að bæta það upp með stærðfræðinni, þannig að þetta ætti að ganga hjá honum.
En man nú ekki eftir öðru þannig að bið að heilsa þangað til næst.